Brim hf. hefur gerst aðalstyrktaraðili umhverfissamtakanna Bláa hersins sem hafa starfað í 25 ár og leggja áherslu á baráttuna við plastmengun í hafinu með hreinsunarstörfum við strendur landsins og með hvatningu og vitundarvakningu.

Brim mun styðja rekstur samtakanna með fjárframlögum og með faglegri aðkomu að kynningu og markaðsstarfi í þeim tilgangi að auka sýnileika umhverfissamtakanna. Þá mun Brim taka beinan þátt í verkefnum Bláa hersins með eigin hreinsunardegi a.m.k. einu sinni að ári þar sem fjörur verða gengnar og hreinsaðar.

Kristján Davíðsson, stjórnarformaður Brims, segir í tilkynningu að Blái herinn undir forystu Tómasar J. Knútssonar hafi unnið frábært starf í aldarfjórðung við að hreinsa fjörur af plasti og ekki síður með því að vekja athygli á mengun í hafinu.

„Brim leggur mikla áherslu á sjálfbærni og umhverfismál í sínu starfi og vill sýna í verki hvernig skilningur og virðing fyrir samfélagi og umhverfi fer saman við ábyrgan og arðsaman rekstur félagsins. Það fer því vel á að Brim gangi til liðs við Bláa herinn í baráttunni við plastmengun í hafinu.“