Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru afhent við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins í gær. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin. Umhverfisfyrirtæki ársins er Brim en framtak ársins á sviði umhverfismála á Krónan.

Í tilkynningu segir að Brim hafi tekið umhverfismálin föstum tökum.

„Fyrirtækið leggur áherslu á samfélagsábyrgð og virðingu fyrir umhverfinu og hefur unnið að því að kortleggja áhrif og ábyrgð félagsins. Þá hefur Brim sett sér markmið og mælikvarða til að mæla árangur, draga úr sóun og auka verðmæti. Brim hefur dregið markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda, fjárfest í nýrri tækni og skipum sem hefur skilað miklu.“

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, tók við verðlaununum í Hörpu.

„Við í Brimi erum þakklát fyrir þessa viðurkenningu. Hún gerir okkur ánægð og stolt. Virðing fyrir náttúru hefur verið okkar leiðarljós og við sjáum að áhersla á umhverfismál og sjálfbærni skilar sér í aukinni arðsemi og miklum ábata fyrir samfélagið í heild. Við í Brimi ætlum að halda áfram á sömu braut. Umhverfisverðlaunin eru hvatning til að gera enn betur.“

Krónan fékk verðlaun á Umhverfisdegi atvinnulífsins í dag fyrir framtak ársins á sviði umhverfismála.