Samkvæmt nýrri breytingu á reglugerð um vigtun og skráningu afla sem hefur tekið gildi skal ljúka vigtun afla á hafnarvog og endurvigtun Fiskmarkaða gildir ekki. Vigtarmanni er heimilt að draga allt að 3% frá vegnum afla vegna áætlaðs íss í afla eftir að hafa gengið úr skugga um að aflinn sé ísaður.
Áður var nokkrum fiskmörkuðum heimilt að endurvigta aflann með því að vigta hvern fisk án íss. 3% íshlutfall í 774 kg, sem er leyfilegur dagskammtur strandveiðibáta, er 23,2 kg af ís. Í Ferskfiskbók Matís er fjallað um kælingu fisks. Þar segir að meiri ís þarf til að kæla fisk að sumarlagi heldur en á veturna þegar sjórinn er kaldari. Í bókinni er tekið dæmi af 100 kg af fiski sem er 8°C heitur. Til að þessi fiskur komist niður í 0°C þarf 9-10 kg af ís, eða nær 10%. Miðað við dagskammtinn þyrftu strandveiðibátar með fullan skammt því um 74 kg af ís en ekki 23,2 kg til þess að meðhöndlun hráefnisins væri með besta móti.
Mikil afturför
Talsmenn fiskmarkaðanna segja reglugerðarbreytinguna mikla afturför. Samkvæmt heimildum Fiskifrétta hefur reglugerðarbreytingin þegar haft þau áhrif að margir sjómenn dragi við sig að ísa aflann enda liggja við sektir fari þeir yfir 774 kg í heildarvigt að frádregnum 3%. Þetta muni leiða til lakara hráefnis sem berist inn á markaðina.
Verð í sögulegum hæðum
Meðalverð á fiskmörkuðum hefur ekki verið hærra í maí og það sem af er júní síðastliðin sjö ár. Í maí og það sem af er júní stóð það í 510 kr./kg. Þetta skýrist meðal annars af því að þrátt fyrir fjölgun strandveiðibáta er umtalsverður samdráttur í lönduðum afla miðað við sama tímabil í fyrra. Þannig var landaður afli strandveiðibáta í maí um 3.943 tonn af þorski en var 4.520 tonn í maí 2024. Í júní í fyrra var þorskafli strandveiðibáta einnig um 4.500 tonn en það sem af er júní 2025 á sjö dögum er aflinn kom inn í 1.300 tonn. Samkvæmt yfirliti Fiskistofu er þorskafli strandveiðibáta nú 5.316 tonn og hafa verið veidd rúm 53% af heildarpottinum, 10.000 tonnum. Mest hefur verið veitt við Vesturland, 2.900 tonn, 1.253 tonn við Suðurland, rúm 1.000 tonn við Strandir að Eyjafirði og 532 tonn við Norðaustur- og Austurland.