Ísfisktogarinn Breki VE kom að landi síðdegis í gær eftir fyrsta túrinn að loknu sumarfríi áhafnarinnar. Aflabrögð voru góð og var uppistaðan aflans djúpkarfi, ufsi og gullkarfi.
„Túrinn gekk mjög vel,“ segir Bergur Guðnason skipstjóri í samtali við tíðindamann Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Það var Bergur sem stýrði Breka í þessari veiðiferð. „Þetta var fyrsti túrinn eftir sjö vikna sumarfrí, en áhöfnin var fljót að detta í gírinn aftur.“
Áhersla á karfa og ufsa
Veitt var aðallega vestur í Skerjadýpi og á svæði sem kallað er Fjöllin, þar sem voru ágæt aflabrögð.

„Við lögðum áherslu á djúpkarfa, ufsa og gullkarfa – og það reyndist vera uppistaðan í aflanum,“ segir Bergur í samtali við Vinnslustöðvarvefinn.
Breki hélt aftur til veiða strax í morgun, en þá tekur Magnús Ríkarðsson við sem skipstjóri. Bergur gerir ráð fyrir svipuðu uppleggi og í síðasta túr – að halda vestur á sömu mið.