Vilhelm Þorsteinsson EA kom með fyrsta makrílfarminn á vertíðinni til vinnslu í Neskaupstað og lauk vinnslu aflans aðfaranótt fimmtudags. Á fimmtudagsmorguninn kom síðan Börkur NK með 1.100 tonn og hófst vinnsla úr honum strax.
Rætt er við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra á Berki á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
„Við vorum að veiðum í Síldarsmugunni við norsku línuna og þar eru íslensku skipin auk tuttugu rússneskra og grænlensku skipanna Polar Amaroq og Polar Ammassak. Þegar við lögðum af stað í land með aflann vorum við tæpar 400 mílur frá Neskaupstað. Það eru fjögur skip sem veiddu þann afla sem við fluttum að landi að þessu sinni. Okkar eigin afli fékkst í þremur holum en síðan tókum við afla frá Beiti, Barða og Margréti. Þetta veiðisamstarf skipanna gengur mjög vel og er skynsamlegt í alla staði en fimmta skipið í veiðisamstarfinu er Vilhelm Þorsteinsson sem fyrstur hélt til lands með afla. Makrílveiðarnar hefjast nú viku fyrr en oftast áður og veiðin fer ekki illa af stað þó hún sé misjöfn frá einum tíma til annars," segir Hjörvar.

Hann segir fiskinn nú á ætisslóð í Smugunni og vonandi komi hann inn í íslenska lögsögu.
Fá makríl á króka í Faxaflóanum
„Fiskurinn sem hefur veiðst í íslenskri lögsögu á undanförnum árum er af stærstu gerð, 500-600 gramma fiskur. Fiskurinn sem við erum nú að veiða er hins vegar 450 – 490 grömm þannig að hann er af annarri kynslóð og það er jákvætt. Ég var að heyra af því að menn væru farnir að fá makríl á króka í Faxaflóanum og það bendir til að einhver fiskur sé kominn inn í lögsöguna. Spurningin er bara hve það er í miklum mæli. Íslensku skipin verða á makrílveiðum í júlí og ágúst en Norðmenn og Færeyingar hefja veiðar síðar og þeir munu þá veiða fiskinn í miklu betra ástandi. Þá verður hann ekki fullur af átu. Annars verður að segjast að veiðin fer ágætlega af stað núna. Ég fékk fréttir um að veiðin væri ekkert sérstök þessa stundina en það getur breyst á augabragði,” sagði Hjörvar.