Blátindur VE 21 var á sínum tíma meðal stærstu og glæsilegustu fiskiskipa í Vestmannaeyjum. Hann var fiskibátur alla tíð. Þá var hann einnig notaður sem varðskip í Faxaflóa sumrin 1950 og 1951, búinn fallbyssu. Báturinn er einn af 78 vélbátum með þilfari sem smíðaðir voru í Vestmannaeyjum á 20. öld og sá eini sem eftir er. Hann var smíðaður í Dráttarbraut Vestmannaeyja. Báturinn var í notkun fram undir 1990 og var gerður upp og færður í upprunalegt horf 2001. Næstu árin stóð hann á landi en árið 2018 var honum komið í sýningarhæft ástand og komið fyrir á Skansinum. Þaðan losnaði hann í óveðri í ársbyrjun 2020 og sökk í Vestmannaeyjahöfn. Báturinn var hífður nokkrum dögum síðar og settur á land þar sem hann hefur verið síðan, óvarinn fyrir tímans tönn. FF MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON