Frystitogarinn Blængur NK kom til löndunar í Neskaupstað á þriðjudag að aflokinni 28 daga veiðiferð en verið var að veiðum í 26 daga. Afli skipsins var 715 tonn upp úr sjó og kom það að landi með 20.400 kassa af frystum fiski. Verðmæti aflans er um 325 milljónir króna.

Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að aflinn hafi verið blandaður, mest af ufsa og ýsu en síðan töluvert af þorski og grálúðu. Þar er rætt við Sigurð Hörð Kristjánsson skipstjóra.

„Við vorum allan túrinn austur af landinu í þokkalegasta veðri. Reyndum við grálúðu fyrst út af Austfjörðum en síðan var haldið í Berufjarðarál, á Stokksnesgrunn, Papagrunn og Mýragrunn. Áhersla var lögð á að veiða ýsu og ufsa. Erfiðlega hefur gengið að veiða ufsa all lengi en í þessum túr var nudd í ufsanum allan tímann. Túrinn gekk vel enda gott að vera nánast alltaf á sama stað við veiðarnar. Vinnslan um borð gekk eins og í sögu enda virkilega góður mannskapur á skipinu. Það hefur verið góð ýsugengd og við höfum fengið að veiða hana en hins vegar hefur verið minni veiði í grálúðunni en oft áður. Það er mikil ásókn í grálúðuna og það hefur sín áhrif. Skipið heldur til veiða á ný í kvöld og það verður nægum verkefnum að sinna. Það verður síðasti túr þessa kvótaárs,” segir Sigurður Hörður.