Nýr Blængur NK 125 hélt í fyrsta sinn til veiða undir merkjum Síldarvinnslunnar um síðustu helgi. Skipstjóri í fyrstu veiðiferðinni er Sigtryggur Gíslason.
Síldarvinnslan hf. keypti frystitogarann  Frera af Ögurvík hf.  Freri hét upphaflega Ingólfur Arnarsson og var smíðaður í skipasmíðastöðinni Astilleros Luzuriaga S.A. á Spáni. Skipið kom nýtt til landsins í janúarmánuði 1974. Það var í eigu Bæjarútgerðar Reykjavíkur til ársins 1985 en þá festi Ögurvík hf. kaup á því. Þegar Ögurvík eignaðist skipið var því breytt í frystiskip.
Árið 2000 voru umfangsmiklar breytingar gerðar á skipinu en þá var það meðal annars lengt um 10 metra og aðalvél þess endurnýjuð ásamt öðrum vélbúnaði. Einnig var vinnslulínan og frystilest endurnýjuð. Skipið er 79 metra langt og búið 5.000 hestafla aðalvél af gerðinni Wartsila. Það er 1.723 tonn að stærð.