Varðskipið Týr bjargaði síðdegis í dag 342 flóttamönnum af litlum trébát um 50 sjómílur norðvestur af Trípólí í Líbýu en mikill leki var kominn að bátnum. Fjöldi kvenna og barna er í þessum hópi eða alls 135 konur og 27 börn. Nokkrar kvennanna eru barnshafandi. Veður á vettvangi er þokkalegt og gengu björgunaraðgerðir vel fyrir sig.
Er áhöfn Týs hafði lokið við að koma öllum flóttamönnunum um borð í Tý hélt varðskipið rakleiðis að öðrum bát með um 200 flóttamenn um borð og aðstoðaði áhöfn Týs nú við að koma þeim flóttamönnum um borð í annað skip sem er á staðnum. Þegar því máli er lokið mun Týr halda með flóttamennina 342 til hafnar á Ítalíu.
Gríðarlegur straumur flóttafólks er nú á þessu svæði og hefur á þriðja þúsund manns verið bjargað þar á síðustu dögum.