Hluti úr breskri sprengju sem notuð var í seinni heimsstyrjöldinni kom í veiðarfæri ísfisktogarans Bjargar EA 7 í gær er skipið var við veiðar á Rifsbanka, norður af Melrakkasléttu.

Þetta kemur fram á vef Samherja. Haft hafi verið samband við Landhelgisgæsluna sem staðfesti að brotið væri hluti af MARK XVII sprengju.

Eftirfarandi frásögn af málinu er að finna á vef Samherja:

„Árni Rúnar Jóhannesson skipstjóri segir að Hreinn Birkisson stýrimaður hafi orðið var við að torkennilegur hlutur væri kominn í trollið og því ákveðið að hífa inn veiðarfærin.

Árni Rúnar Jóhannesson skipstjóri Bjargar EA 7. Mynd Samherji
Árni Rúnar Jóhannesson skipstjóri Bjargar EA 7. Mynd Samherji

„Við áttuðum okkur fljótlega á því að þetta væri hluti úr sprengju og settum okkur því í samband við Landhelgisgæsluna, sem ber að gera við slíkar aðstæður. Sérfræðingar þar úrskurðuðu strax að um væri að ræða hluta af MARK XVIII sprengju sem breski herinn beitti í síðari heimsstyrjöldinni. Við sendum Landhelgisgæslunni myndir af sprengjubrotinu og nákvæma staðsetningu á því hvar það kom í veiðarfærin,“ segir Árni Rúnar.

Engin hætta á ferðum

„Það er annars ekkert grín að fá þessar gömlu sprengjur í veiðarfærin og um borð, lykilatriðið er hreyfa alls ekkert við þeim og allra síst að skila þeim aftur í hafið. Sem betur fer var þetta einungis hluti úr sprengju og engin hætta á ferðum. Við þurfum með öðrum orðum ekki að stíma í land, sem þarf að gera ef um er að ræða ósprungnar sprengjur.“

Vinsæl togslóð

„Annars voru sérfræðingarnir hjá Landhelgisgæslunni að grínast með það að áhöfnin ætti kannski að splæsa saman í nokkra lottómiða, þar sem við hittum á þetta sprengjubrot á vinsælli togslóð. En svona í alvöru talað, þetta var góðu heilli aðeins brot úr sprengju og engin hætta á ferðum. Engu að síður er þetta mjög óæskilegt og getur hæglega skemmt veiðarfærin, “ segir Árni Rúnar Jóhannesson skipstjóri á Björgu EA 7.“