Við setningu alþjóðlegu ráðstefnunnar Björgunar í dag í Hörpu var fjórða björgunarskipið sem Slysavarnafélagið Landsbjörg lætur smíða í Finnlandi afhent formlega.

Forstjóri Kewatec, finnsku skipasmíðastöðvarinnar, afhenti Borghildi Fjólu Kristjánsdóttur, formanni félagsins björgunarskipið Björg formlega. Við sama tilefni tilkynnti Jón Gunnarson, formaður ráðgjafarhóps um endurnýjun björgunarskipa, að fjármögnun lægi fyrir sem tryggði að raðsmíðaverkefni félagsins heldur áfram. Í dag var svo skrifað undir samning um smíði fimmta skipsins, sem verður staðsett á Höfn í Hornafirði.

Útgerðarmenn leggja lið

Það voru útgerðarmaðurinn Guðmundur Kristjánsson sem lagði verkefninu til 50 milljónir og Hvalur hf með aðrar 50 milljónir, sem tryggðu um tíma, áframhald verkefnisins. Guðmundur og Kristján Loftsson voru báðir viðstaddir athöfnina ásamt Hermanni Björnssyni forstjóra Sjóva, sem hafði þegar styrkt félagið um 142 milljónir, og fulltrúum frá útgerðarfyrirtækinu Skinney-Þinganes á Höfn, sem hefur stutt afar vel við starf Björgunarfélags Hornafjarðar í gegnum tíðina, og lagt fram rausnarlegt framlag til styrktar endurnýjunar björgunarskipsins Ingibjargar.

Auk þessara fyrirtækja hefur Ísfélagið í Vestmannaeyjum og Rammi hf. á Siglufirði, stutt við endurnýjun skipa í þeirra heimabyggð.

Ríkið stendur við sinn hlut

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu að málið hafi verið rætt í ríkisstjórn í morgun og ríkur vilji væri til að þetta verkefni gengi snurðulaust áfram og fullvissaði viðstadda að ekki þyrfti að hafa áhyggjur af því að ríkið stæði ekki við sinn hlut. Áður hefur komið fram að sökum verðlagsþróunar hefur verð skipanna hækkað.

Bjarni sagði ýmsar áskoranir væru til staðar, en leyst yrði úr þeim og að verkefnið nyti almenns stuðnings á Alþingi og hlaut mikið lófatak ráðstefnugesta fyrir.

Enn er þó nokkuð í land að verkefnið sé full fjármagnað og þar með smíði sjötta skipsins, en samtal er í gangi við meðal annars útgerðina á vettvangi SFS og fleiri stærri fyrirtækja í landinu um myndarlega aðkomu þeirra að fjármögnun þeirra skipa sem út af standa.

Björgunarskipið Björg mun verða gestum Björgunar til sýnis fram á sunnudag, en halda þá til heimahafnar á Rifi, þar sem heimamenn hafa blásið til hátíðar af því tilefni. Áætlað er að ný Björg muni renna inn í höfn á Rifi klukkan 18:00 á sunnudagskvöld.