Bjartsýni ríkir varðandi um að lausn finnist á deilu sjómanna og útgerðarmanna. Deilendur funduðu í rúma tvo tíma í dag og nýr fundur hefur verið boðaður á morgun.
„Fundurinn var bara góður, menn voru á jákvæðu nótunum allir saman og við ætlum að ræða saman aftur klukkan eitt á morgun og vonandi tekst okkur bara að ljúka þessu eins og stefnt var að,“ segir Konráð Alfreðsson varaformaður Sjómannasambands Íslands í samtali á vef RÚV.
Svipað viðhorf var að heyra hjá Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. „Fundurinn gekk áætlega. Það er ágætt hljóð í mönnum þrátt fyrir snúna stöðu, en ég hef sagt að það er jákvætt að við séum að ræða saman og viðræðum verður framhaldið, þannig að því leytinu til getum við verið bjartsýn.“