Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson hefur verið selt til Holberg Shipping í Noregi og kveður því Hafrannsóknastofnun og heimahöfn í Hafnarfirði eftir ríflega 54 ára dygga þjónustu. Smíðasamningur var undirritaður 11. mars 1969, skipinu hleypt af stokkunum 27. apríl 1970 en það kom til Reykjavíkur þann 17. desember 1970. Frá þessu segir á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar.

Bjarni Sæmundsson HF við höfuðstöðvar Hafró í Hafnarfirði.
Bjarni Sæmundsson HF við höfuðstöðvar Hafró í Hafnarfirði.

Nýlunda í íslensku skipi

Vel var vandað til smíði Bjarna Sæmundssonar og í skipinu var ýmis nýr búnaður sem ekki hafði áður verið settur í íslensk skip. Í því eru dísel rafstöðvar sem knýja rafmótor sem knýr skipið áfram. Vélarrúm skipsins er sérstaklega einangrað og vélar og rafalar á sérstöku gúmmíundirlagi til þess að minnka hávaða og titring. Þessi búnaður var á sínum tíma alger nýlunda í íslensku skipi og síðan hefur hann aðeins verið settur í eitt annað íslenskt skip, þ.e. hafrannsóknaskipið Árna Friðriksson sem kom nýtt til landsins árið 2000. Innleiðing þessarar tækni á sínum tíma leiddi til töluverðs sparnaðar á olíunotkun.
Bjarni Sæmundsson lagði upp í sinn fyrsta rannsóknaleiðangur þann 6. janúar 1971. Skipið hefur gengt fjölþættum verkefnum í sambandi við íslenskar hafrannsóknir en stærstur hefur þar verið hlutur rannsókna á uppsjávar- og botnfiskum, ásamt sjó- og svifrannsóknum.

Hver var Bjarni Sæmundsson?

Bjarni Sæmundsson (1867-1940) var brautryðjandi í rannsóknum á lífríki Íslands. Hann hóf nám í Lærða skólanum árið 1883 þá 16 ára gamall og lauk stúdentsprófi sex árum síðar. Að prófi loknu sigldi hann til Kaupmannahafnar til háskólanáms og lauk fullnaðarprófi í náttúrufræði og landafræði árið 1894.

Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur.  Myndin er fengin af Vísindavefnum.
Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur. Myndin er fengin af Vísindavefnum.

Bjarni er líklegar best þekktur fyrir fiskirannsóknir sínar. Eftir kennslu á vorin hafði hann þann háttinn á að hann ferðaðist um landið þvert og endilangt til að kynnast fiskveiðum landsmanna. Hann vildi bæði sjá hvað betur mátti fara og ekki síður hafði hafði hann áhuga á að safna upplýsingum um reynslu og þekkingu manna svo þær yrðu ekki gleymsku að bráð. Upp úr þessum rannsóknaferðum hans kom fyrst út ritgerðin „Fáein orð um fiskveiðar vorar“ sem birtist í 20. árgangi tímaritsins Andvara árið 1895. Næstu áratugina á eftir birti Bjarni margar fleiri ritgerðir bæði í íslenskum og erlendum tímaritum.

Fyrir merkar vísindarannsóknir og framlag til náttúrurannsókna var Bjarni Sæmundsson kjörinn heiðursdoktor við Hafnarháskóla á 450 ára afmæli skólans árið 1929.

Í lok árs 2010 birtist þessi umfjöllun um hafrannsóknaskipið í Fiskifréttum.