Nú, þegar loðnukvótinn hefur verið aukinn, hefur Síldarvinnslan tekið ákvörðun um að senda Birting NK til veiða, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Birtingur NK hét áður Börkur NK og hefur bráðum verið í eigu Síldarvinnslunnar í 40 ár. Birtingur var nýttur til loðnuveiða á síðustu vertíð en hefur síðan legið við bryggju á Seyðisfirði.

Skipstjóri á Birtingi NK verður Tómas Kárason.