Bergey VE, sem nú er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi, var sjósett í morgun klukkan átta að íslenskum tíma. Smíði skipsins er á áætlun og er gert ráð fyrir að það verði afhent Bergi-Hugin í lok september.

Síldarvinnslan hf. greinir frá þessu á heimasíðu sinni.

Bergey er systurskip Vestmannaeyjar VE sem kom ný til landsins fyrr í þessum mánuði.

Bæði skipin eru smíðuð fyrir Berg-Hugin í Vestmannaeyjum, sem er dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar. Vestmannaey var fyrsta skipið af sjö sömu gerðar sem Vard smíðar fyrir íslensk útgerðarfyrirtæki.