Um þessar mundir fagnar útgerðarfélagið Bergur – Huginn ehf. 45 ára afmæli sínu. Félagið var stofnað í desembermánuði 1972 af útgerðum Bergs VE 44 og Hugins VE 55 sem voru í eigu Kristins Pálssonar og Guðmundar Inga Guðmundssonar.

Síldarvinnslan hf. festi kaup á útgerðarfélaginu árið 2012, og frá þessum tímamótum er sagt á heimasíðu fyrirtækisins.

Skip félagsins, Vestmannaey og Bergey, hafa átt gott ár. Heildarafli skipanna tveggja á árinu var 8.575 tonn og aflaverðmæti rétt tæplega tveir milljarðar króna.

„Hér er um að ræða nýtt aflamet hjá skipum félagsins. Fyrra met er frá árinu 2008 en þá var aflinn 8.493 tonn hjá þremur skipum; Vestmannaey, Bergey og Smáey. Það sem gerir hið nýja aflamet einkar athyglisvert er að skipin tvö voru einungis gerð út í 10 mánuði á árinu, frá 19. febrúar til 14. desember. Afli á sóknardag á árinu var 22 tonn hjá hvoru skipi,“ segir í frétt Síldarvinnslunnar.

Þá segir frá því að á árinu var skrifað undir samning við skipasmíðastöðina Vard Aukra í Noregi um smíði á tveimur nýjum togskipum fyrir félagið. Þessum nýju skipum er ætlað að leysa núverandi Vestmannaey og Bergey af hólmi.

Skipin verða 28,95 metrar að lengd og 12 metrar að breidd. Í skipunum verða tvær aðalvélar og verða þau með tveimur skrúfum. Ný kynslóð rafmagnsspila verða í skipunum og allur búnaður um borð verður hinn fullkomnasti. Áætlað er að skipin verði afhent kaupanda í mars- og maímánuði árið 2019.