Á Fáskrúðsfirði er beðið eftir því að Hoffell SU geti haldið til síldveiða, þar sem Loðnuvinnslan hf. er eina fyrirtækið sem enn framleiðir saltsíld, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins.
Það sem af er árinu er búið að úthluta 10.000 tonnum af íslenskri sumargotssíld, en það var gert til að mæta meðafla með makríl í sumar. Á sl. ári var úthlutað 40.000 tonnum af Íslandssíldinni og vona menn að úthlutunin nú verði ekki minni. Skv. rannsóknum á síldinni í sumar virtist sýkingin vera að ganga nokkuð til baka. Undirmenn á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni hafa að undanförnu verið í verkfalli og hefur það komið niður á rannsóknum bæði á síld og loðnu. Rannsóknarskipið Dröfn hóf þó síldarrannsóknir á Breiðafirði 19. október s.l. og skip frá Skinney-Þinganesi ætlaði að halda til síldveiða undan Suðurlandi, en þeir áttu eftir einhvern kvóta frá í sumar. Það verður því vonandi ekki langt að bíða eftir frekari úthlutun á íslensku sumargotssíldinni, segir ennfremur á vef Loðnuvinnslunnar.