Það er víðar en við Ísland sem vísindamenn ráðleggja samdrátt í ýsuveiðum á næsta ári. Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur lagt til að ýsukvótinn í Barentshafi verði minnkaður úr 318.000 tonnum á þessu ári í 240.000 tonn á því næsta.
Þetta byggist á því að nýliðun á árunum 2007-2010 var undir langtímameðaltali og árgangarnir 2009-2011 rétt yfir meðaltalinu. Norska hafrannsóknastofnunin styður ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins.