Bárður SH-81 hefur verið á veiðum fyrir norðan land og í Húnaflóa á undanförnu þar sem áherslan hefur verið lögð á ýsu. Myndin var tekin 17. júní þar sem Bárður lá við festar í Dalvíkurhöfn. Pétur Pétursson skipstjóri og eigandi bátsins sagði að annað spilið hefði bilað og var verið að gera við það þegar Jón Páll Ásgeirsson smellti þessari mynd af. Bárður SH var smíðaður hjá Bredgaard Boats í Danmörku. Hann kom til landsins í nóvember 2019 og var þá stærsti stærsti trefjaplastbátur sem hafði verið smíðaður fyrir íslenska útgerð.