Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Neskaupstaðar í gærmorgun og landaði þar 65 tonnum. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og kvartaði hann sáran undan veðri.
„Við fórum út í góðu veðri en síðan versnaði það mjög. Það var svo slæmt að við gátum ekki verið að veiðum og slóuðum í eina fjórtán tíma. Veiðin var með rólegasta móti. Við vorum að veiðum frá Brettingsstöðum í norðri og suður á Tangaflak og á ýmsum miðum þar á milli. Það var alls staðar frekar lítið að hafa en aflinn var mest ýsa og þorskur. Stundum þurfa menn að glíma við skítaveður og tregfiskirí en þá er bara að klára túrinn og byrja upp á nýtt,” sagði Hjálmar Ólafur.