Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR - áður Brim) keypti í dag tíu milljónir hluta í HB Granda á genginu 33,89 krónur á hlut. Félagið greiddi því 338,9 milljónir króna fyrir hlutina. Eftir viðskiptin á ÚR um 38% hlut í HB Granda.
ÚR er í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra HB Granda. Hann er stærsti hluthafi HB Granda eftir að hafa keypt 34% hlut Hvals í HB Granda fyrir 21,7 milljarða króna í vor.