Flutt hafa verið út rúm 9 þúsund tonn af ferskum heilum þorski til vinnslu erlendis á fyrstu 8 mánuðum ársins. Er það 35% aukning frá sama tíma í fyrra þegar magnið nam 6.701 tonni. Frá þessu er greint á vef Landssambands smábátaeigenda og unnið upp úr tölum frá Hagstofu Íslands.

Útflutningsverðmæti fyrstu 8 mánuðina ársins fyrir þennan flokk nema um 5,3 milljörðum króna sem aukning um 1,2 milljarða króna milli ára.

Mest fór af ferskum heilum þorski til Þýskalands, eða 24% af heildinni. Fimmtungur fór til Hollands og 19,7% til Bretlands. „Hér er um nokkur tíðindi að ræða þar sem Bretar hafa lengst af vermt fyrsta sætið. Voru t.d. með 46% alls útflutningsins árið 2022. Mikill munur var á verði hvers kílós hjá þessum þremur þjóðum. Hollendingar greiddu hæsta verðið og var það um 37% hærra en heill þorskur seldist á til Þýskalands.“