Útflutningsverðmæti ferskra ýsuflaka jókst um rúman fimmtung á fyrri helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra.
Alls var flutt út fyrir rúman tvo og hálfan milljarð. Magnaukning var 16% og nam útflutningurinn nú 3.538 tonnum. Bretar keyptu langmest af okkur, 62% heildarmagnsins.
Frá þessu er skýrt á vef LS.