Heildarafli íslenskra fiskiskipa var rúm114 þúsund tonn í ágúst 2015 sem er rúmlega 9.800 tonnum meiri afli en í ágúst 2014, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.
Botnfiskaflinn nam tæpum 26.000 tonnum í ágúst sem er aukning um 27% samanborið við ágúst 2014, þar af nam þorskaflinn rúmum 12.000 tonnum sem jafngildir 8,1% aukningu á milli ára. Flatfiskaflinn nam rúmum 2.000 tonnum sem er tæpum 1.500 tonnum meiri afli en í ágúst 2014, munar þar mest um aukinn afla á grálúðu og skarkola. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 85.000 tonnum og jókst um rúm 3% samanborið við ágúst 2014. Skel- og krabbadýraafli nam tæpum 1.200 tonnum í ágúst samanborið við tæp 900 tonn í ágúst 2014.
Metið á föstu verði jókst aflinn í ágúst 2015 um 5,5% miðað við ágúst 2014.
Á síðustu 12 mánuðum hefur heildarafli úr sjó aukist um tæp 255 þúsund tonn eða um 23,5% ef miðað er við sama tímabil ári fyrr. Þessa aukningu má nær eingöngu rekja til aukins uppsjávarafla.