Hraðfrystihúsið-Gunnvör í Hnífsdal ætlar að auka landvinnslu á þorski og auglýsir nú eftir vönu starfsfólki til vinnu. Ástæðan er sú að stórþorskurinn er í ríkari mæli unninn í landi hjá félaginu og síðan hitt að skip félagsins veiðir byggðakvóta Hnífsdals.
Þetta kemur fram á heimasíðu H-G. Þar segir að fiskur yfir 6 kíló að þyngd sé sífellt stærri hluti af afla ísfisktogara félagsins og var á síðasta ári um 7-8%, eða um 300 tonn.
Undanfarin ár hefur þessi stóri fiskur verið seldur á fiskmarkaði til saltfiskframleiðanda. Nú hafa efnahagserfiðleikar í Suður-Evrópu orðið til þess að verð á stórum fiski hefur lækkað mikið. Til að bregðast við þessu hefur H-G tekið í notkun Baader flökunarvél, sem er sérstaklega hönnuð til flökunar á fiski allt að 13 kílóum að þyngd.
Á síðastliðnu ári var unnið úr um 5.700 tonnum af hráefni í landvinnslu H-G í Hnífsdal og Ísafirði. Nú fyrir skömmu var ísfisktogaranum Páli Pálssyni ÍS úthlutað byggðakvóta Hnífsdals fyrir yfirstandandi fiskveiðiár og er hann alls um 180 þorskígildistonn. Þetta er mikil aukning frá fyrri árum og skapar möguleika til að auka landvinnslu H-G í Hnífsdal.
Þessir tveir þættir leiða til þess að vinnslutíma þarf að lengja tímabundið og fjölga starfsfólki. Fyrirhugað er að stytta hefðbundið sumarstopp miðað við það sem verið hefur. Því er nú leitað að vönu starfsfólki í snyrtingu og pökkun.
Sjá nánar http://frosti.is/