Hornfirðingar eins og aðrir landsmenn gerðu sér glaðan dag í tilefni sjómannadagsins síðastliðinn sunnudag. Út gerðarfélagið Skinney-Þinganes bauð bæjarbúum í siglingu úti fyrir ósnum á föstudag. Fjöl margir þáðu boðið eins og sést á mannfjöldanum hvarvetna á skipinu ef grannt er skoðað. Stór skip geta einungis farið út og komið inn á flóði því ósinn getur verið skipum varasamur. Myndin er tekin síðastliðið föstudagskvöld þegar Ásgrímur Halldórsson SF 250 hélt í land að aflokinni skemmtisiglingunni.