Í tengslum við yfirstandandi kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna hafa áhrif gengisbreytinga og lækkandi verðs á fiskmörkuðum gjarnan komið til umræðu. Gengi krónunnar hefur hækkað mikið síðustu mánuði og virðist enn ekkert lát vera á þeirri þróun. Auk hinna óhagstæðu gengisbreytinga hefur afurðaverð farið lækkandi á helstu mörkuðum. Þetta tvennt hefur valdið mörgum sjávarútvegsfyrirtækjum erfiðleikum og rýrt mjög kjör sjómanna. Til þess að útskýra hvað hér er um að ræða er birt á vef Síldarvinnslunnar meðfylgjandi tafla. Taflan sýnir framleiðslu og framleiðsluverðmæti frystitogarans Barða NK á árinu 2015 og til samanburðar framleiðsluverðmæti og afurðaverð á núverandi gengi og miðað við núverandi afurðaverð.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Að sjálfsögðu hefur þessi þróun neikvæð áhrif fyrir útgerð skipsins en hlutur skipverja lækkar einnig mikið. Sem dæmi má nefna að árshlutur háseta var 18,8 milljónir á árinu 2015 en verður einungis 13,8 milljónir miðað við núverandi gengi og afurðaverð. Árstekjur þeirra lækka því um 5 milljónir króna.