Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt úr höfn 30. júní til þátttöku í árlegum alþjóðlegum uppsjávarrannsóknaleiðangri.
„Eitt af meginmarkmiðum hans er að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar. Fram kemur að í leiðangrinum verði einnig aflað gagna sem nýtast við vöktun og fjölbreyttar rannsóknir á ýmsum þáttum vistkerfisins þ.m.t. frumframleiðni, ástand sjávar, samsetningu og magn átu og breytileika á umhverfiserfðaefni í sjó.
Leiðangurinn varir í 26 daga og 26 eru um borð

„Þetta er sextánda árið í röð sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í leiðangrinum ásamt skipum frá Noregi, Færeyjum og Danmörku. Yfirferðasvæði Árna er fyrir norðan, austan, sunnan og vestan landið ásamt svæðis í grænlenskri lögsögu norðan Íslands og í kringum Jan Mayen,“ segir í tilkynningunni.
Leiðangurinn á Árna stendur yfir í 26 daga og verða sigldar tæplega 4.700 sjómílur eða um 8.700 km og 47 yfirborðstogstöðvar verða teknar á fyrirfram ákveðnum stöðum. Um borð eru sex vísindamenn, þrír háskólanemar og sautján manna áhöfn.
Líkt og áður er hægt að fylgjast með staðsetningu og feril Árna hér.