Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki með aflaverðmæti um borð upp á um 300 milljónir króna.
Þetta kemur fram á á heimasíðu Fisk Seafood.
„Við fórum frá Sauðárkróki 9. júlí og höfum verið að veiðum í fínu veðri allan túrinn, á Vestfjarðarmiðum og Suðvesturmiðum. Það hefur aðeins verið vart við ufsa og mikið af gullkarfa og ýsu. Það verður landað 19.500 kössum og 300 milljónum,“ er haft eftir Guðmundi Henry á síðu Fisk Seafood.
Samkvæmt upplýsingum frá Fisk Seafood kom Arnar með um 300 tonn af ufsa upp úr sjó og um 260 tonn af gullkarfa. Enn er verið að landa úr skipinu.