Áhöfnin á varðskipinu Þór lagði á dögunum af stað í árlegan vitatúr í samstarfi við starfsmenn Vegagerðarinnar. Áratugum saman hafa varðskip Landhelgisgæslunnar siglt meðfram ströndum landsins vegna eftirlits með ljósvitum, skerjavitum, sjómerkjum og ljósduflum sem ekki er hægt að komast í frá landi.

Áhöfnin á varðskipinu Þór og starfsmenn Vegagerðarinnar sjá um eftirlit og viðhald á vitum og öðrum sjómerkjum í ferðinni en með í ferðinni voru einnig starfsmenn aðgerðasviðs. Meðal verkefna í vitatúrunum er að yfirfara rafgeyma og sólarspegla auk þess að endurnýja perur auk annars tilfallandi viðhalds.

Meðfylgjandi myndir sem ljósmyndarinn Bragi Valgeirsson tók, sýna frá fyrstu dögum vitatúrsins en varðskipið sigldi austur með landinu frá Reykjavík að þessu sinni.

Dekkið á varðskipinu Þór spúlað.
Dekkið á varðskipinu Þór spúlað.

Starfsmenn Vegagerðarinnar og áhöfnin á varðskipinu Þór hafa annast viðhald á vitum landsins.
Starfsmenn Vegagerðarinnar og áhöfnin á varðskipinu Þór hafa annast viðhald á vitum landsins.