Síðastliðinn föstudag var haldinn framhaldsfundur strandríkja vegna stjórnunar veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2013. Fundurinn var án árangurs og boðað verður til annars fundar um miðjan janúar.
Þessi niðurstaða þýðir ennfremur að samkomulag um stjórn veiða úr kolmunnastofninum á árinu 2013 er ekki í höfn. Á vettvangi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) eru í undirbúningi reglur sem koma í veg fyrir veiðar annarra þjóða úr þessum stofnum á alþjóðlegu hafsvæði á meðan ósamið er.