Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson hefur ákveðið í samráði við Hafrannsóknastofnun að farið verði í annan loðnuleiðangur í nóvember til að freista þess að ná betri mælingu á loðnustofninum en var reyndin í hinum hefðbundna haustleiðangri sem skilaði því miður alltof litlum árangri mælt í ráðgjöf fyrir vetrarvertíð. Frá þessu er skýrt á vef ráðuneytisins.
Eftir sem áður er gert ráð fyrir að Hafrannsóknastofnun fari í hefðbundna loðnuleit í janúar og febrúar. Árangur slíkrar leitar veltur hins vegar mjög á aðstæðum og hegðun loðnunnar. Stofnunin hefur aðeins yfir 2 skipum að ráða og veðurfar oft rysjótt á þessum árstíma sem sett getur strik í reikninginn. Mjög mikils virði í þessu samhengi er að íslenskar útgerðir hafi aflaheimildir í upphafi vertíðar en þá aukast til muna líkur á því með fjölda skipa að finna loðnuna en hegðun hennar hefur verið býsna óútreiknanleg hin síðari ár.
Í frétt ráðuneytisins segir að vegna aðhalds og góðs rekstrar verði mögulegt að fjármagna þennan leiðangur af rekstrarfé Hafrannsóknastofnunar. Jafnframt beri að fagna að Grænland, sem heldur á næst stærsta hlutnum í loðnustofninum, hefur ákveðið að láta í fyrsta sinn fé af hendi rakna til loðnurannsókna, sem hjálpi mikið til við að gera þennan viðbótar leiðangur mögulegan.