Álsey VE 2, uppsjávarskip Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, var tekin upp í slippnum í Reykjavík þar sem skipið hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna. Annað verður ekki átt við skipið að þessu sinni sem að öðru leyti er í toppstandi. Álsey fer ekki til veiða á ný fyrr og ef loðnuveiðar hefjast en búast má við fyrstu ráðgjöf frá Hafrannsóknastofnun í þessum mánuði. Álsey var smíðuð 2003 í Noregi.