Í gær, 10. febrúar, voru liðin rétt 40 ár síðan „Stóri Börkur“ kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Neskaupstað. Árið 2012 festi fyrirtækið kaup á nýjum Berki NK og fékk „Stóri Börkur“ þá nafnið Birtingur NK. Birtingur NK var gerður út til loðnuveiða á vertíðinni 2012 og hóf á ný veiðar í síðustu viku.

Frá þessu er skýrt á vef Síldarvinnslunnar . Svo skemmtilega vildi til að í gær kom Birtingur NK til hafnar í Neskaupstað með fyrsta loðnufarm sinn á vertíðinni. Til að fagna því að skipið hefur verið í eigu Síldarvinnslunnar í 40 ár var gömlum Barkarmönnum boðið til kaffiveislu um borð. Komu allmargir til veislunnar og var þar glatt á hjalla og sögur sagðar frá eldri tíð.

Allir voru sammála um að útgerðarsaga skipsins væri stórmerk enda hverfandi líkur á að annað skip í íslenska flotanum hafi borið meiri eða jafnmikinn afla að landi (tæplega 1,5 milljón tonn).