Allt annar bragur hefur verið yfir hákarlaveiðum á þessu ári en því síðasta. Það sem af er árinu hafa veiðst 56,3 tonn en á sama tíma í fyrra voru þau einungis 3,5. Megnið af hákarlinum hefur verið veitt á fimm bátum úti fyrir Austurlandi en afli togara er um 13 tonn.
Guðjón Guðjónsson á Sæljóni NS frá Vopnafirði er stórtækur hákarlaveiðimaður. Þegar Fiskifréttir náðu tali af honum hafði hann dregið alls um 15,5 tonn af hákarli á land. Í einni veiðiferðinni náði hann fimm hákörlum. Hver þeirra vegur frá 700 kg upp í eitt tonn.
Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.