Makrílverð til skipa í Noregi hefur verið 75-90% af úflutningsverðmæti makrílafurða síðustu tíu árin. Hérlendis var þetta hlutfall innan við 30% í fyrra.
Samkvæmt tölum norska síldarsamlagsins nam makrílverð til skipanna á síðasta ári um 8 norskum krónum að meðaltali eða jafnvirði 160 íslenskra króna á núverandi gengi. Útflutningsverð á frystum makrílafurðum frá Noregi á sama tíma nam að meðaltali tæplega 11 NOK/kg eða jafnvirði tæplega 220 íslenskra króna. Hlutfall hráefnisverðs af útflutningsverði var því nálægt 75%.
Hráefnisverð á makríl á Íslandi er ekki opinbert en eftir því sem næst verður komist var verðið hérlendis á síðasta ári að meðaltali í kringum 45 kr/kg en útflutningsverð frystra makrílafurða var 176 kr/kg á núvirði. Hlutfallið var því 26%.
Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.