Fiskistofa hefur tilkynnt 567 útgerðaraðilum á strandveiðum að skip þeirra hafi veitt umfram það afla hámark sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð strandveiða í maí.

Þetta kemur fram á vef Fiskistofu. Þar segir að samkvæmt lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla sé lagt á gjald vegna umframafla á strandveiðum.

„Eftir 20. júní verður hægt að greiða gjaldið í heimabanka en þá munu reikningar vegna gjaldsins verða aðgengilegir í stafrænu pósthólfi á Ísland.is,“ segir Fiskistofa.

Listi yfir þá tuttugu sem lönduðu mesta umframaflanum

Samtals var umframafli skipa á strandveiðum um 83 tonn. Að sögn Fiskistofu er hægt að nálgast upplýsingar um umframaflann ásamt upplýsingum um þau 20 skip sem landað hafa mestum umframafla yfir allt landið eða á hverju svæði á Gagnasíðum Fiskistofu.

„Á gagnasíðunum hefur Fiskistofa einnig birt áætlun um fjölda veiðidaga sem eftir eru á strandveiðum. Áætlunin byggir á meðalveiði þeirra veiðidaga sem þegar er lokið, miðað við hana má gera ráð fyrir að strandveiðum ljúki í annarri viku júlí mánaðar,“ segir á fiskistofa.is.