Brim hf. hefur sagt upp öllum skipverjum á frystitogaranum Brimnesi RE 27. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að rekstrargrundvöllur frystitogara hafi breyst mikið á undanförnum árum og  með gríðarlegri hækkun veiðigjalda á síðustu árum hafi rekstrargrundvöllur þessara skipa brostið að mati Brims hf.

„Á síðasta ári voru veiðigjöld  Brimnes um það bil 10% gjald af aflaverðmæti  skipsins.  Þegar aðstöðugjald var lagt niður á Íslandi þá var það um það bil 1,5% af veltu fyrirtækja og þótti hátt þá. Brim hf. mun leita að verkefnum fyrir skipið erlendis þar sem félagið sér ekki breytingar í vændum hér á landi í rekstrarumhverfi þessara skipa,“ segir í fréttatilkynningunni.

Brimnes RE er 2.848 tonna frystitogari sem gerður er  út  frá Reykjavík.  Brimnesið er nýjasti og stærsti frystitogari Íslendinga og var smíðaður í Noregi árið 2003.  Fjörutíu manns eru í áhöfn skipsins.  Árið 2013 var aflaverðmæti þess 2.680 milljónir króna og laun og launategnd gjöld  voru 1.028 milljónir króna.

Sjá nánar heimasíðu Brims hf.