Starfsmenn Náttúrustofu Norðurlands vestra náðu árið 2016 merktri álku við rannsóknir við Bjargtanga á Látrabjargi. Nú er komið í ljós að fuglinn var merktur á þessum sama stað árið 1987 en þá var hann tveggja ára gamall. Um er því að ræða aldursmet íslenskrar álku; fuglinn hefur verið a.m.k. 31 árs gamall við endurheimtu. Fyrra met átti álka sem merkt var sem ungi í Grímsey 11. júlí 1982 og var skotin í Eyjafirði 15. desember 2010, þá rúmlega 28 ára gömul.
Frá þessu greinir Yann Kolbeinsson en í júní 2016 voru starfsmenn Náttúrustofunnar staddir við Bjargtanga við endurheimtur dægurrita af svartfuglum.
Við leit að merktum álkum náðist fugl sem reyndist bera gamalt stálmerki frá Náttúrufræðistofnun Íslands. Hluti merkisins var orðinn mjög eyddur og ólæsilegur en þó tókst að finna út úr númeri merkisins sem var 457064. Endurheimtan var tilkynnt til Náttúrufræðistofnunar og fyrr á þessu ári bárust loks upplýsingar um merkingu þessa fugls.
„Heims- og Evrópumetið á hins vegar velsk álka sem náði 42ja ára aldri. Var hún merkt sem ungi á eyjunni Bardsey 2. júlí 1964 og endurheimtist á sömu eyju 25. júní 2004. Hún er jafnframt annar elsti fugl sem endurheimst hefur á Bretlandseyjum. Í N-Ameríku er elsta þekkta álkan 28 ára gömul, greinir Yann frá í grein sinni.