Fyrsta æfing þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar og áhafnarinnar á varðskipinu Freyju fór fram í gær þegar skipið var austur af landinu. Áhöfnin tók á móti sigmanni og lækni þyrlunnar  á þilfari skipsins sem framkvæmdu PCR-próf á áhöfninni fyrir komuna til Siglufjarðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Varðskipið Freyja lagði af stað frá Rotterdam áleiðis til Íslands á þriðjudag. Skipið kom inn í efnahagslögsöguna um hádegi í gær og sigldi svo inn í íslenska landhelgi laust fyrir klukkan tíu í gærkvöld.

Freyja mun leggjast að bryggju á Siglufirði klukkan 13:30 í dag í fylgd varðskipsins Týs, þyrlu Landhelgisgæslunnar og björgunarskipsins Sigurvins. Þá verður þremur púðurskotum skotið úr fallbyssu skipinu til heiðurs.

Forseti Íslands, dómsmálaráðherra, bæjarstjórinn í Fjallabyggð og forstjóri Landhelgisgæslunnar verða meðal þeirra sem taka á móti skipinu þegar það kemur til hafnar í dag.