Ágæt kolmunnaveiði hefur verið syðst í færeysku lögsögunni síðustu daga en þar er mikill floti skipa að veiðum. Ólafur Gunnar Guðnason stýrimaður á Berki sagði í morgun að líklega væru 30-40 skip að veiðum á litlum bletti og þau væru að toga nánast á línunni þar sem kolmunninn gengi norður og inn í færeysku lögsöguna.

„Það er mikil strolla af skipum að toga hérna og við erum væntanlega að taka lokaholið, en það vantar um 250 tonn til að fylla skipið,“ sagði Ólafur í samtali á vef Síldarvinnslunnar. „Við erum núna með okkar sjöunda hol í túrnum og venjulega er togað í 12-18 tíma. Aflinn er breytilegur en við höfum verið að fá 300-500 tonna hol og það er gott. Það kom smá dreifð í veiðina í gær og fram eftir nóttu en nú hefur verið að lifna yfir þessu aftur. Þetta gengur svona á kolmunnanum, veiðin vill vera dálítið köflótt. Við gerum ráð fyrir að fylla skipið og leggja af stað í land um eða uppúr hádegi,“ sagði Ólafur að lokum.

Beitir er væntanlegur til Neskaupstaðar með fullfermi af kolmunna í dag og Birtingur hefur hafið veiðar. Birtingur þurfti að bíða í höfn í Færeyjum um tíma til að komast að á miðunum en einungis 12 íslensk skip mega veiða samtímis í færeysku lögsögunni.