Venus NS – skip HB Granda - er á landleið með rúmlega 2.600 tonna kolmunnaafla og er skipið væntanlegt til Vopnafjarðar síðdegis í dag.

Að sögn Róberts Axelssonar skipstjóra er nú skörp kolmunnaveiði í færeysku lögsögunni.

Þetta kemur fram í viðtali við Róbert á heimasíðu fyrirtækisins.

„Það er búin að vera fínasta veiði. Við vorum innan við fjóra sólarhringa á miðunum og holin eru yfirleitt frá átta tímum og upp í 12-14 tíma. Við höfum verið að fá 400 til 550 tonn af kolmunna í holi og alls tókum við sex hol í þessum túr,” segir Róbert.

Svo virðist sem að kolmunninn sé á norðurleið en Róbert segir að á meðan veiðin sé jafn skörp og raun ber vitni þá séu menn lítið að leita að nýjum veiðisvæðum. Kolmunninn gangi hins vegar mjög vestarlega núna, líkt og í fyrra.

Róbert segir jafnframt að kolmunninn er af fínni stærð líkt og í fyrsta túr skipsins eftir páskahátíðina. Þá var aflinn einnig um 2.600 tonn en landað var á Vopnafirði í byrjun síðustu viku.