Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 65 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2009, samanborið við rúmlega 54 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæplega 11 milljarða eða 19,7 % á milli ára. Aflaverðmæti í júlí nam 11,2 milljörðum króna miðað við 8,9 milljarða í júlí 2008.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok júlí orðið 46 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 16,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam rúmum 39 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 21 milljarður og jókst um 7% frá árinu 2008.
Aflaverðmæti ýsu nam um 9 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 5,4 milljörðum, sem er 41% aukning frá fyrstu sjö mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 4% milli ára í 3,4 milljarða króna.
Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 35,% miðað við fyrstu sjö mánuði ársins 2008. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Sjá nánar HÉR