Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 91 milljarði króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 77 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 14 milljarða eða 18,2% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok ágúst orðið 64 milljarðar og jókst um 21,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 53 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 30 milljarðar og jókst um 28% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 11 milljörðum og jókst um rúmlega 5%.

Verðmæti karfaaflans nam 7,6 milljörðum, sem er 25% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 32% milli ára og nam 5,6 milljörðum á fyrstu átta mánuðum ársins 2010.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 7 milljörðum króna í janúar til ágúst 2010, sem er 3% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 15% milli ára og nam 17,7 milljörðum.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands, HÉR