Heildarafli smábáta nam um 78 þúsund tonnum á síðasta fiskveiðiári og heildaraflaverðmætið um 30 milljörðum króna. Útflutningsverðmætið var um 60 milljarðar króna. Þetta er meðal þess sem kom fram í ræðu Arnar Pálssonar framkvæmdastjóra á aðalfundi LS fyrr í mánuðinum. Þar fór hann yfir verðmæti og afla smábáta á síðastliðnu fiskveiðiári.
Geta verið stoltir
„Vel aflaðist á nýliðnu fiskveiðiári. Heildarafli smábáta var um 78 þúsund tonn. Afli krókaaflamarksbáta var 60 þúsund tonn, strandveiðar um 13 og aflamarksbátar voru með 5 þúsund tonn. Tveir þriðju hlutar aflans var þorskur. Heildaraflaverðmæti þessa mikla afla nam um 30 milljörðum og útflutningsverðmætið tvöfalt hærri. Til samanburðar var verðmæti alls botnfiskafla á fyrstu 7 mánuðum þessa árs um 74 milljarðar. Smábátaeigendur geta því verið stoltir með sitt framlag fyrir land og þjóð,“ sagði Örn meðal annarra orða í ræðu sinni.