Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 44,5 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2013 samanborið við 46,7 milljarða á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um tæplega 2,2 milljarða króna eða 4,7% á milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var rúmlega 25,5 milljarðar og dróst saman um 9,7% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti þorskafla var um 14,2 milljarðar og dróst saman um 10,0% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 3,7 milljörðum og dróst saman um 14,7% en verðmæti karfaaflans nam tæpum 4 milljörðum, sem er 13,4% samdráttur frá fyrstu þremur mánuðum ársins 2012. Verðmæti ufsaaflans jókst um 3,2% milli ára og nam rúmlega 1,7 milljarði króna í janúar til mars 2013.
Verðmæti uppsjávarafla nam rúmum 16,3 milljörðum króna í janúar til mars 2013, sem er um 10,5% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla en aflaverðmæti loðnu nam 15,5 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins sem er 18,4% aukning miðað við sama tímabil í fyrra.
Aflaverðmæti flatfisksafla nam tæpum 2,1 milljörðum króna, sem er 28,0% samdráttur frá janúar til mars 2012.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar .