Afli íslenskra skipa á síðasta ári var tæp 1.363 þúsund tonn, 86 þúsund tonnum minni en árið 2012. Aflaverðmæti nam tæpum 153 milljörðum króna og dróst saman um 4,1% frá fyrra ári, eða um 2,2% ef mælt er á föstu verði.

Þetta kemur fram í nýútkomnu riti Hagstofunnar um afla, aflaverðmæti og ráðstöfun afla árið 2013.

Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, að megninu til uppsjávarafli sem þar var landað. Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu eða 29,4% og á Suðurnesjum, 19,5%.

Verðmæti aukaafurða sem féllu til við vinnslu fiskaflans nam tæpum 5 milljörðum króna á árinu 2013 og jókst um 9,6% frá árinu áður. Verðmæti aukaafurða telst ekki með inni í heildaraflaverðmæti. Varðandi útflutning sjávarafurða kemur fram að mestur útflutningur var til Bretlands eða um 16,3% af útflutningsverðmæti. Útflutningur til N-Ameríku jókst um 15,6% á milli ára. Útflutningsframleiðsla sjávarafurða jókst um 2,2% frá árinu 2012.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.