Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 137,9 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2012, samanborið við 127,6 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 10,3 milljarða eða 8,1% á milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var 81,3 milljarðar sem er 6% aukning frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 76,7 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 41,5 milljarðar sem er 12,7% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti ýsu, sem nam 10,4 milljörðum, jókst um 8,4% milli ára en verðmæti karfaaflans nam 11,9 milljörðum sem er 6,3% aukning frá fyrstu tíu mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 9,1% milli ára og nam 8,0 milljörðum króna í janúar til október 2012.
Verðmæti uppsjávarafla nam um 42,3 milljörðum króna í janúar til október 2012, sem er 10,4% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti loðnu nam 13,1 milljörðum sem er 50,2% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra og verðmæti kolmunna, sem var 2,7 milljarðar á fyrstu tíu mánuðum ársins, jókst um rúmlega 2,4 milljarða milli ára. Aflaverðmæti síldar nam 10,6 milljörðum króna í janúar til október 2012 sem er 9,3% aukning milli ára. Hins vegar dróst aflaverðmæti makríls saman um 19,2% miðað við sama tímabil í fyrra en aflaverðmæti makríls í janúar-október 2012 var 14,4 milljarðar.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar.