ff
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 70,7 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2012 samanborið við 57,3 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 13,4 milljarða eða 23,4% á milli ára, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.
Aflaverðmæti botnfisks var 45,5 milljarðar og jókst um 16,2% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 39,2 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 24 milljarðar og jókst um 11,4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 6,8 milljörðum og jókst um 19,4% en verðmæti karfaaflans nam 7,1 milljarði, sem er 38,1% aukning frá fyrstu fimm mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 13,1% milli ára og nam 3,4 milljörðum króna í janúar til maí 2012.
Verðmæti uppsjávarafla nam um 17,1 milljarði króna í janúar til maí 2012, sem er 56,6% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla að verðmæti 13 milljörðum króna samanborið við 8,7 milljarða á fyrstu fimm mánuðum ársins 2011. Einnig var 1,5 milljarða króna aukning í kolmunnaafla, sem nam um 2,5 milljörðum króna árið 2012. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 5,3 milljörðum króna, sem er 8,9% aukning frá janúar til maí 2011. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 37,3 milljörðum króna og jókst um 26,6% miðað við fyrstu fimm mánuði ársins 2011. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 13,1% milli ára og var tæplega 10,2 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam tæpum 20 milljörðum í janúar til maí og jókst um 28% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 2,7 milljörðum króna, sem er 3,7% aukning frá árinu 2011