Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 130,8 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2013 samanborið við 138,4 milljarða á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúmlega 7,5 milljarða króna eða 5,5% á milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var tæplega 75,9 milljarðar króna og dróst saman um 6,8% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti þorskafla nam 38,1 milljarði og dróst saman um 8,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 9,6 milljörðum og dróst saman um 7,2% en verðmæti karfaaflans nam rúmum 11,5 milljörðum, sem er 4,1% samdráttur frá fyrstu tíu mánuðum ársins 2012.
Verðmæti úthafskarfa nam 2,1 milljarði króna á fyrstu tíu mánuðum ársins og jókst um 8% miðað við sama tímabil í fyrra. Verðmæti ufsaaflans jókst um 7,9% milli ára og nam rúmum 8,6 milljörðum króna í janúar til október 2013.
Verðmæti uppsjávarafla nam rúmum 41,6 milljörðum króna í janúar til október 2013, sem er um 2,1% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti loðnu nam 15,6 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins sem er 19,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra.
Aflaverðmæti kolmunna jókst um 9,6% frá fyrra ári og var tæplega 3 milljarðar króna í janúar til október 2013. Aflaverðmæti síldar dróst saman um 35,8% milli ára og var rúmlega 6,9 milljarðar króna í janúar til október 2013.
Aflaverðmæti makríls var um 15,4 milljarðar króna á fyrstu tíu mánuðum ársins sem er 6,7% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti flatfisksafla nam rúmum 8,4 milljörðum króna, sem er 9% samdráttur frá janúar til október 2012.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar.